Aðalfundur HIV-Ísland fyrir árið 2026 verður haldinn í húsnæði félagsins Hverfisgötu 69, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 24. febrúar næstkomandi kl. 16.30.
Dagskrá fundarins er lögum samkvæmt:
1. Kosning fundarstjóra
2. Kosning ritara.
3. Formaður flytur skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
4. Gjaldkeri leggur fram til samþykktar endurskoðaða reikninga félagsins.
5. Lagabreytingar ef einhverjar eru.
6. Kosning formanns og annara stjórnarmanna og tveggja skoðunarmanna reikninga.
7. Árgjöld ákveðin.
8. Önnur mál.
Núverandi stjórn er svo skipuð:
Formaður:
Svavar G. Jónsson
Meðstjórnendur:
Árni Friðrik Ólafarson
Guðmundur Karlsson
Ingi Rafn Hauksson
Andrew Mc Comb
Jón Helgi Gíslason
Unnur Guðrún Þórarinsdóttir
Atkvæðisrétt á fundinum hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld fyrir árið 2025.
Að loknum fundi verður boðið upp á veitingar.
Fyrir hönd stjórnar HIV-Ísland
Einar Þór Jónsson framkvæmdastjóri.







