Kæru félagar! Við tökum að venju þátt í gleðigöngunni næsta laugardag!..með bíl, bílstjóra og tónlist. Nú verður líka bíll sem hægt verður sitja í. Söfnumst saman á Hverfisgötu eftir 12.00. Næring og hjartastyrkjandi. Saman í litum, samstöðu, mildi, gleði og sýnileika. Lagt af stað frá Skólavörðuholti kl 14.00. Spáð frábæru veðri! Sjáumst stolt…og í biluðu…
Upplýsinga og fræðslukvöldi RKÍ um HiV.
Rauði kross Íslands stóð nýlega fyrir upplýsinga og fræðslukvöldi um HiV. Fjölmenni mætti á fundinn og mikill áhugi og umræður. Fundurinn fór fram á ensku og voru túlkar á spænsku og úkraínsku. Vel gert og til fyrirmyndar.
Aðalfundur HIV-Ísland 26. febrúar 2024
Aðalfundur HIV-Ísland fyrir árið 2024 verður haldinn í húsnæði félagsins Hverfisgötu 69, 101 Reykjavík, mánudaginn 26. febrúar næstkomandi kl. 17.00. Dagskrá fundarins er lögum samkvæmt: Kosning fundarstjóra Kosning ritara. Formaður flytur skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. Gjaldkeri leggur fram til samþykktar endurskoðaða reikninga félagsins. Lagabreytingar ef einhverjar eru. Kosning formanns, sex…
Fræðslu- og forvarnarverkefni
Stuðningur MAC og embætti Landlæknis undafarin ár hefur verið grundvöllur þess að HIV Ísland hefur tekist að halda úti fræðslu um HIV og alnæmi fyrir 9. og 10. bekkinga í grunnskólum landsins undanfarin 20 ár. Verkefni sem þetta er brýnt og þarf stöðugt að vinna að því. Markmið fræðslunnar er annars vegar að unglingar sýni…
Minning: Hólmfríður Gísladóttir
Minning: Hólmfríður Gísladóttir Fædd 3. nóvember 1938. Dáin. 7. mars 2023 Hólmfríður, starfsmaður Rauða krossins til fjölda fjölda ára, stóð ásamt fleirum að stofnun Alnæmissamtakanna. Hún sat í stjórn þeirra þegar staðan var skelfileg. Það var mjög gott að eiga hana að. Hún var kraft- og kjarkmikil, einstaklega kærleiksrík kona. Hún brosti, var hláturmild…
Sóttvarnalæknir tilbúinn að skoða hraðpróf við HIV
„Ég trúi því að við gætum gert sambærilega hluti og á Norðurlöndunum þegar kemur að hraðprófunum við HIV-veirunni,“ svarar Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir spurð í húsakynnum HIV Ísland við Hverfisgötu. „Það eru til próf sem eru nógu góð til að nota við réttar aðstæður og ég tel að með því myndum við greina fleiri.“ Guðrún, ásamt…
Minning: Steven Þór Grygelko / Heklina
Mynd: Bianca Del Rio, Sherry Vine, Steven og Donni 2019 Minning: Steven Þór Grygelko / Heklina Fæddur 17. júní 1967. Dáinn 3. apríl 2023 Steven var sonur Bandaríkjamannsins Stanleys og Kristínar Grygelko sem er íslensk. Hann lést óvænt í London 3. apríl síðastliðinn eftir að hafa dvalið á Íslandi um stundarsakir. Andlát hans var…
Um innri HIV tengda stimplun
Hugtakið HIV tengd stimplun (e. HIV related stigma) hefur verið viðfangsefni fjölda rannsókna síðustu áratugi þvert á fræðasvið og það notað til að greina upplifun, reynslu og neikvæð áhrif samfélagslegra viðhorfa á líf og heilsu HIV jákvæðra. Fyrstu skilgreiningar á hugtakinu voru settar fram í lok síðustu aldar og náðu til afleiðinga neikvæðra samfélagslegra viðhorfa…
Gömul sár og ný
Ég fór á frumsýninguna á Plágu þætti Hrafnhildar Gunnarsdóttur í seríunni Svona fólk í Bíó Paradís. Orkan þetta kvöld, opnunin, tengingin var svo kyngimögnuð. Ég var svo slegin yfir því hvað ég vissi lítið um þetta og skildi loksins bilið milli kynslóðanna innan raða hinsegin fólks. Vissi að ég vildi gera leikhús um þetta. Ég…
Öll eigum við að fá minnst eina HIV prufu á lífsleiðinni
HIV veiran og HPV eru vinkonur, segir Erna Milunka Kojic, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítala. „Þessar veirur fara saman.“ Erna kom heim frá Bandaríkjunum fyrir rúmu ári en þar bjó hún í nærri þrjá áratugi. Hún hvetur til frekari skimana vegna aukinnar áhættu HIV jákvæðra á að fá krabbamein af völdum HPV veira. Hún segir hættulegt að…
Lífið gaf mér annað tækifæri – Sveinn Kjartansson
„Ég lifði af – Lifði af faraldurinn og það að þurfa að lifa af“ Sveinn Kjartansson segir frá því hvernig hann náði að snúa lífinu sér í hag eftir að hafa glímt við HIV allt frá níunda áratugnum. „Mér leið alltaf eins og ég hefði handsprengju innanklæða, hún tikkaði og ég vissi ekki hvenær hún…
Sátta- og minningarstund 21. maí 2023 – Álfur Birkir Bjarnason
Kæru gestir Sagan er til þess að læra af henni. Ef við ákveðum að gera það ekki, lýsum við því í raun yfir að mistök fortíðarinnar hafi verið til einskis. Þegar kemur að sögu alnæmisfaraldursins er margt að læra. Við getum lært að bregðast hratt og faglega við óþekktum ógnum. Við getum lært að hafa…
Sátta- og minningarstund 21. maí 2023 – Alnæmi og guðfræðiváin
Í ár eru 40 ár liðin frá því að fyrsta HIV smitið var greint á Íslandi og við þau tímamót er rétt að gera upp hvaða sár sitja eftir frá þeim tíma. Prestar lögðu sitt af mörkum í þjónustu við HIV jákvæða en sr. Jón Bjarman sjúkrahúsprestur var meðal þeirra sem unnu að stofnun HIV…
Sátta- og minningarstund 21. maí 2023 – Halla Kristín Sveinsdóttir
Kæru gestir Sæl Halla Kristín Sveinsdóttir heiti ég og takk fyrir að lofa mér að vera með ykkur hér í dag þrátt fyrir að þessari stund fylgi mikil sorg þá er hún þörf. Elsku vinur minningin lifir eins og stendur á legsteini Inga bróður, Inga Gests Sveinssonar, og er bara árið á milli okkar hann…
Sátta- og minningarstund 21. maí 2023 – Einar Þór
Sunnudaginn 21. maí var haldin sátta- og minningarstund í Fríkirkjunni í Reykjavík í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá fyrsta HIV smiti. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kom þar fram og viðurkenndi fyrir þéttskipaðri kirkju þá mismunun sem átti sér stað, þá fordóma sem HIV jákvæðir og alnæmissjúkir mættu af hendi yfirvalda og almennings við…
Hugleiðingar framkvæmdastjóra
Í dag er alþjóðlegi HIV dagurinn, 1. desember, en þá gerum við upp baráttuna við þennan skæða sjúkdóm, fögnum þeim sigrum sem hafa unnist í baráttunni, minnumst þeirra sem hafa látist og hugsum til þeirra sem lifa með sjúkdómnum frá degi til dags. Á liðnu ári greindust 39 einstaklingar með HIV á Íslandi. Félagið okkar…
Samtök HIV jákvæðra 35 ára
HIV Ísland fagnar í ár þeim áfanga að hafa starfað í 35 ár. Félagið var stofnað 1. desember 1988. Fagnað segi ég, en það var auðvitað ekkert fagnaðarefni að til félagsins var stofnað í upphafi. Félagið var stofnað af illri nauðsyn, nauðsyn sem reyndar er enn til staðar þó margt hafi áunnist og breyst á…
Alþjóðlegi alnæmisdagurinn föstudaginn 1. desember 2023
Alþjóðlegur dagur alnæmis er haldinn hátíðlegur þann 1. desember um heim allan. Dagurinn er tileinkaður minningu þeirra sem látist hafa af völdum alnæmis og baráttunni gegn fordómum og mismunun gagnvart fólki sem er HIV+. Í ár eru liðin 40 ár frá fyrstu HIV greiningu á Íslandi. 39 einstaklingar voru skráðir með HIV á liðnu ári.…
Sátta- og minningarstund í Fríkirkjunni í Reykjavík 21. maí 2023
Sunnudaginn 21. maí var haldin sátta- og minningarstund í Fríkirkjunni í Reykjavík í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá því fyrsta HIV smitið var greint á Íslandi. Minningarstundin, HIV candlelight memorial service, hefur verið haldin árlega í Fríkirkjunni í Reykjavík í hátt í 30 ár. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti ávarp og viðurkenndi þá…
HIV Sátta- og minningarstund 21. maí
Sunnudaginn 21. maí kl. 14:00 verður haldin sátta- og minningarstund í Fríkirkjunni í Reykjavík í tilefni þess að 40 ár liðin frá því fyrsta HIV smitið var greint á Íslandi. Minningarstundin, HIV candlelight memorial service, hefur verið haldin árlega í Fríkirkjunni í Reykjavík í hátt í 30 ár. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun þar koma fram…