Aðalfundur HIV-Ísland fyrir árið 2021 verður haldinn í húsnæði félagsins Hverfisgötu 69, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 23. febrúar næstkomandi kl. 17.00.
Dagskrá fundarins er lögum samkvæmt:
- Kosning fundarstjóra
- Kosning ritara.
- Formaður flytur skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
- Gjaldkeri leggur fram til samþykktar endurskoðaða reikninga félagsins.
- Lagabreytingar ef einhverjar eru.
- Kosning sex stjórnarmanna og tveggja skoðunarmanna reikninga.
- Árgjöld ákveðin.
- Önnur mál.
Núverandi stjórn er svo skipuð:
Formaður:
- Svavar G. Jónsson
Meðstjórnendur:
- Árni Friðrik Ólafarson
- Fjóla Guðmundsdóttir
- Guðmunur Karlsson
- Róbert Gaska
- Andrew Mc Comb
- Hjálmar Forni
Atkvæðisrétt á fundinum hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld fyrir árið 2020.
Að loknum fundi verður boðið upp á súpu, kaffi og meðlæti.
Fyrir hönd stjórnar HIV-Ísland
Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri.