Aðalfundur HIV-Ísland fyrir árið 2022 verður haldinn í húsnæði félagsins Hverfisgötu 69, 101 Reykjavík, mánudaginn 28. febrúar næstkomandi kl. 17.00.
Dagskrá fundarins er lögum samkvæmt:
- Kosning fundarstjóra
- Kosning ritara.
- Formaður flytur skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
- Gjaldkeri leggur fram til samþykktar endurskoðaða reikninga félagsins.
- Lagabreytingar ef einhverjar eru.
- Kosning formanns.
- Kosning sex stjórnarmanna og tveggja skoðunarmanna reikninga.
- Árgjöld ákveðin.
- Önnur mál.
Núverandi stjórn er svo skipuð:
Formaður:
- Svavar G. Jónsson
Meðstjórnendur:
- Árni Friðrik Ólafarson
- Guðmunur Karlsson
- Róbert Gaska
- Andrew Mc Comb
- Hjálmar Forni
- Jón Helgi Gíslason
Atkvæðisrétt á fundinum hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld fyrir árið 2021.
Að loknum fundi verður boðið upp á bollukaffi.
Fyrir hönd stjórnar HIV-Ísland,
Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri.