Aðalfundur HIV-Ísland fyrir árið 2024 verður haldinn í húsnæði félagsins Hverfisgötu 69, 101 Reykjavík, mánudaginn 26. febrúar næstkomandi kl. 17.00.
Dagskrá fundarins er lögum samkvæmt:
- Kosning fundarstjóra
- Kosning ritara.
- Formaður flytur skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
- Gjaldkeri leggur fram til samþykktar endurskoðaða reikninga félagsins.
- Lagabreytingar ef einhverjar eru.
- Kosning formanns, sex stjórnarmanna og tveggja skoðunarmanna reikninga.
- Árgjöld ákveðin.
- Önnur mál.
Núverandi stjórn er svo skipuð:
Formaður
- Svavar G. Jónsson
Meðstjórnendur
- Árni Friðrik Ólafarson
- Guðmunur Karlsson
- Ingi Rafn Hauksson
- Andrew Mc Comb
- Hjálmar Forni
- Jón Helgi Gíslason
Atkvæðisrétt á fundinum hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld fyrir árið 2023.
Að loknum fundi verður boðið upp á veitingar.
Fyrir hönd stjórnar HIV-Ísland
Einar Þór Jónsson
framkvæmdastjóri