Kæru vinir!
Alþjóðlegur dagur alnæmis er haldinn hátíðlegur sunnudaginn 1. desember um heim allan.
Dagurinn er tileinkaður minningu þeirra sem látist hafa af völdum alnæmis og baráttunni gegn fordómum og mismunun gagnvart fólki sem er HIV smitað.
42 einstaklingar voru skráðir með HIV hér á landi á liðnu ári 2023.
Í tilefni dagsins er opið hús að Hverfisgötu 69. Á fyrsta sunnudegi í aðventu og daginn eftir kosninganótt!.frá kl. 15 til 18. Mætum í samveru hlýju og gleði. Heit jólaglögg og kaffiveitingar.
Kórinn Hrynjandi tekur lagið.
Bjarni Snæbjörnsson, leikari og leikstjóri les úr bókinni „Mennskan“
Verið hjartanlega velkomin!
f.h stjórnar
Einar Þór