Frosti Jónsson og Páll Guðjónsson, ásamt fleirum, hafa staðið fyrir viðburðinum Bears on Ice á hverju hausti síðan árið 2005. Síðustu þrjú ár hafa Bears on Ice styrkt HIV-Ísland með peningagjöf og skilar það sér beint í fræðslustarfið.
Í ár færðu Bears on Ice HIV-Íslandi 300 þúsund krónur, 2016 300.000 kr og 2015 400.000kr. eða samtals ein milljón á þrem árum. Ástæðuna fyrir styrkjunum segir Frosti fyrst og fremst vera þá að þeir vilji styðja það góða starf sem að þar fer fram. „Það skiptir máli að halda uppi upplýstri umræðu, ekki bara út á við til samfélagsins heldur líka inn á við í okkar samfélagi, ekki síst til þess að upplýsa og fræða. Svo er þetta til að sýna í verki smá þakklæti fyrir það frábæra starf sem HIV samtökin eru að vinna. Það versta sem gæti gerst er að þessi umræða annað hvort falli í dvala eða nái ekki upp á yfirborðið.“
Bears on Ice er viðburður skipulagður af sjálfboðaliðum og rekinn án hagnaðarsjónarmiða. „Bears on ice er fyrst og fremst fyrir karlmenn sem vilja skemmta sér með öðrum karlmönnum en við erum líka að höfða til útlendinga og vera ástæða fyrir þá til að koma og sjá og upplifa það sem er að gerast hérna á Íslandi.“ Á síðasta ári hafa um 200 manns ferðast til landsins og hluti af þeim hafa tekið þátt í allri dagskránni en aðrir taka aðeins þátt í völdum dagskrárliðum. „Við höfum verið að reyna að opna viðburðinn og reyna að ná meira til íslensku senunnar, ná til Íslendinganna og það hefur orðið mikil breyting þar á á síðustu þremur árum. Við erum farnir að sjá miklu fleiri Íslendinga mæta á dansleikina og þess háttar.“ Það sem fer fram á þessari fjögurra daga hátíð eru meðal annars ferðalög til að njóta íslenskrar náttúru, matur, músík og menning. Hátíðin stækkar milli ára eingöngu vegna góðs orðspors því enginn peningur fer í markaðssetningu.
Frosti vill meina að það sé vel hægt að hafa gaman og vera pólitískur. „Mér finnst að það megi alveg segja að þetta sé ákveðið statement sem felist í okkar nálgun. Við viljum gera þetta á jákvæðum og uppbyggilegum nótum og nálgast umræðuna á þeim forsendum þótt málefnið sé grafalvarlegt. Þetta er líka spurning um hversu móttækilegt fólk er fyrir skilaboðum og oft er það móttækilegra ef maður nálgast hlutina með þessum hætti. Það er bara rosalega mikilvægt að þessi umræða um HIV og PrEP og um heilsufar almennt, sé ekki umræða sem fari bara fram í lokuðum rýmum. Það þarf að vera jafn mikil vitundarvakning meðal almennings og okkar hommana. Viðhorf og bábiljur eru ansi fljótar að hreiðra um sig ef ekkert er gert.“
Starfsemi HIV-Íslands er vel kynnt meðal Bears on Ice hópsins og HIV-Ísland þakkar kærlega fyrir peningagjöfina.
Birtist í Rauða Borðanum 1. des. 2017