Árleg minningarguðsþjónusta vegna þeirra sem látist hafa úr alnæmi hér á landi verður haldin, sunnudaginn 26. maí næstkomandi. Kveikt verður á kertum til að minnast þeirra er látist hafa, einu kerti fyrir hvern einstakling sem við minnumst. Minningarstund þessi er alþjóðleg og heitir á ensku Candlelight Memorial Day.
Staður: Að vanda fer athöfnin fram í Fríkirkjunni í Reykjavík og hefst kl. 14.00 .
Prestur: Sr. Hjörtur Magni Jóhannesson, leiðir guðsþjónustuna.
Ávarp: Framkvæmdastjóri HIV-Ísland, Einar Þór Jónsson, flytur ávarp.
Hugleiðing: Dr. Jón Ingvar Kvaran, flytur hugleiðingu.
Ritningarlestur: verður í höndum félagsmanna.
Kór: Margrét J Pálmadóttir mætir með sína fögru söngfugla.
Orgel: Organisti í athöfninni er Gunnar Gunnarsson.
Boðið verður upp á veitingar í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar að lokinni messu.
Minningarstundin okkar hefur þróast í að verða notaleg samverustund fyrir alla fjölskylduna þar sem ungir og gamlir geta notið hlýlegs andrúmslofts og frábærrar tónlistar. Auk þess að minnast þeirra sem látnir eru fögnum við lífinu og þeim tækifærum sem HIV jákvæðir hafa til eðlilegs lífs í dag.
Vill stjórn HIV Ísland hvetja sem flesta til að koma og njóta þessarar stundar með okkur. Takið endilega með ykkur gesti.
Fyrir hönd stjórnar HIV Ísland,
Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri.