Fræðslu- og forvarnarverkefni
Stuðningur MAC og embættis landlæknis undafarin ár hefur verið grundvöllur þess að HIV Ísland hefur tekist að halda úti fræðslu um HIV og alnæmi fyrir 9. og 10. bekkinga í grunnskólum landsins undanfarin 20 ár. Verkefni sem þetta er brýnt og þarf stöðugt að vinna að því. Markmið fræðslunnar er annars vegar að unglingar sýni sjálfum sér og öðrum fulla virðingu, bæði í kynlífsathöfnum sem og öðrum athöfnum. Hitt meginmarkmiðið er að vinna gegn fordómum, fordómum gegn ákveðnum sjúkdómum, fordómum sem byggjast á fáfræði. Fræðslan er skólunum að kostnaðarlausu. Félagið hefur auk skólafræðslunnar getað staðið fyrir fræðsluerindum um HIV við deildir Háskólans, fangelsi, meðferðastofnana.
Framlag MAC á Íslandi hefur verið eyrnamerkt fræðsluverkefni HIV Ísland. Alltaf koma nýir nemendur sem betur fer, því þarf stöðug skipulögð fræðsla að eiga sér stað.
Einar Þór Jónsson lýðheilsu- og kennslufræðingur er skipuleggjandi þessa verkefnis.
Bankareikningur fyrir verkefnið er á nafni HIV Íslands.
Reikningsnúmer: 513-26-603485. Kt.: 541288-1129.
ALNÆMISSJÓÐUR MAC
Alnæmissjóður MAC var stofnaður árið 1994 af Frank Angelo og Frank Toskan, stofnendum MAC Cosmetics. Sjóðurinn er hjartað og sálin í MAC. Tilgangur hans er að styðja karla, konur og börn um allan heim sem fengið hafa Hiv/alnæmi. Sjóðurinn styrkir einnig fræðslu- og forvarnarverkefni sem beinast að því fólki á hverjum stað sem er í mestri hættu að smitast af Hiv.
Alnæmissjóður MAC hefur frumkvæðið að fræðslu og forvörnum á svæðum sem hafa til þessa notið lítils stuðnings. Sjóðurinn styður mörg ólík samtök um allan heim, sem bjóða upp á margs konar þjónustu til þeirra sem eru Hiv-smitaðir. Með þessu reynir hann að brúa bil fátæktar og sjálfsagðra mann-réttinda.
Styrktarsjóður MAC er þriðji stærsti sjóður í heiminum sem leggur þessum málaflokki lið. Tveir stærstu sjóðirnir eru á vegum lyfjafyrirtækja.
Allt söluandvirði Viva Glam varalita og glossa rennur til sjóðsins. Hingað til hafa verið framleiddar sex tegundir varalita og tvær tegundir glossa. Hver ný Viva Glam herferð byggir á stuðningi frægra listamanna úr heimi tónlistar og annarra listagreina sem leika lykilhlutverk í að fræða almenning um Hiv-smit og alnæmi.
Rosalía sem er alþjóðleg stjarna og nýtt andlit fyrir VIVA GLAM, Nýr varalitur sem markar 26 ár sem sjóðurinn hefur starfað og gefið til baka 100%.
Viva Glam varalitirnir eru 4 talsins:
- VG26: Bjartur rauður litur með mattri áferð
- VIVA GLAM I: Sterkur, brún-blá tóna rauður litur með mattri áferð
- VIVA GLAM II: Kremaður lágstemmdur bleik-brúnn litur með Satin áferð
- VIVA GLAM III: Brún-plómu litur með mattri áferð
Síðan 1994 hefur MAC VIVA GLAM safnað yfir $ 500.000.000 á heimsvísu. Hver einasta króna af söluverði Viva Glam fer í MAC VIVA GLAM Fund, sem styður við heilbrigða framtíð og jafnan rétt fyrir alla.