Sunnudaginn 21. maí kl. 14:00 verður haldin sátta- og minningarstund í Fríkirkjunni í Reykjavík í tilefni þess að 40 ár liðin frá því fyrsta HIV smitið var greint á Íslandi. Minningarstundin, HIV candlelight memorial service, hefur verið haldin árlega í Fríkirkjunni í Reykjavík í hátt í 30 ár.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun þar koma fram og viðurkenna þá fordóma sem HIV jákvæðir og alnæmissjúkir mættu af hendi yfirvalda og almennings við upphaf faraldursins. Auk Katrínar taka til máls Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV Ísland, Halla Kristín Sveinsdóttir aðstandandi, Álfur Birkir Bjarnason formaður Samtakanna ´78, Svavar G. Jónsson formaður HIV Ísland og Hjörtur Magni Jóhannsson forstöðumaður Fríkirkjunnar.
Fram koma:
- Hörður Torfa
- Embla Guðrúnar Ágústsdóttir
- Úlfur Viktor Björnsson
- Tónlistarfólk Fríkirkjunnar undir stjórn Gunnars Gunnarssonar
Öll velkomin! Boðið verður upp á veitingar á eftir.
Sjá Facebook viðburð: HIV Sátta- og minningarstund
Hér eru líka tvö myndbönd tengd viðburðinum:
Kertaljós fyrir 40 árum af HIV á Íslandi
Í ár eru liðin 40 ár frá því að fyrsta HIV smitið var greint á Íslandi og 35 ár frá því að samtökin HIV Ísland voru stofnuð. Saga sjúkdómsins er sársaukafull en þar er jafnframt að finna sögur af sálgæslu, samstöðu og fegurð.
Alnæmi og guðfræðiváin
Í ár eru 40 ár liðin frá því að fyrsta HIV smitið var greint á Íslandi en mikið vatn er runnið til sjávar síðan alnæmisfaraldurinn geisaði fyrst hér á landi. Við þau tímamót er rétt að gera upp hvaða sár sitja eftir frá þeim tíma og hvað vel var gert í aðdraganda og við stofnun HIV Ísland, sem áður hétu Alnæmissamtökin.