Minning: Stig Arne Wadentoft

Fæddur 26. apríl 1940 í Gävle í Svíþjóð – Dáinn 28. febrúar 2022 í Reykjavík Stig Arne Wadentoft fæddist í Gävle í Svíþjóð 26. apríl 1940. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Grund mánudaginn 28. febrúar 2022. Eiginmaður Stigs er Einar Þór Jónsson kennari, lýðheilsufræðingur og framkvæmdastjóri samtakanna HIV-Ísland, f. 1959. 17 ára gamall fluttist Stig einn…

Við erum að læra af sögunni

Ég var ekki búinn að vera formaður Samtakanna ‘78 lengi þegar ég fékk kvíðahnút í magann. Í maí 2022 fór sjúkdómurinn apabóla að greinast víðar en hún hafði áður gert og umræðan var fljót að snúast um að hún smitaðist aðallega við náin kynni karla. Allt, allt of kunnuglegt stef. Menn sem sofa hjá mönnum…

HIV er miklu meira en veira

Föstudagur í nóvember. Það er rólegt fyrir á göngudeild smitsjúkdóma á Landspítala þegar Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV Íslands, sest niður með Önnu Tómasdóttur og Bjarteyju Ingibergsdóttur hjúkrunarfræðingum á deildinni. Þau ræða stöðuna, þjónustuna, apabólu og bráðasálfræðiþjónustu sem skorti sárlega að hafa aðgang að þegar einstaklingar greinast með HIV. Tuttugu falla í hóp nýgreindra HIV-jákvæðra…

Sagan sem á eftir að segja?

Nokkrar hugleiðingar um sögu alnæmis á Íslandi „Gagnstætt öðrum minnihlutahópum ölumst við upp án nokkurra tengsla eða vitundar um félagsskap og menningu annarra homma og án minnstu þekkingar á sögu okkar sem hlýtur að vera forsendan fyrir betra lífi.“ Þetta ákall um að læra söguna birtist í tímariti Samtakanna ´78 Úr felum árið 1983. Hvort…

Gefa 100% til baka með VIVA GLAM í 27 ár

M•A•C Cosmetics og Keith Haring koma saman til þess að fagna því að gefa 100% til baka með VIVA GLAM í 27 ár Vertu með í VIVA GLAM hreyfingunni! Í ár var listamaðurinn Keith Haring heiðraður. Frá árinu 1994 hefur M•A•C VIVA GLAM sjóðurinn safnað YFIR $500.000.000 á heimsvísu og er enn að telja. Við…

„Ég hef alltaf verið ég sjálf“

„Pabbi sagði alltaf: Ef þú ert ekki þú sjálfur ertu ekki neitt. Ég hef alltaf verið ég sjálf,“ segir Omel Svavarss sem segir frá því að hún hafi greinst með HIV veiruna fyrir einu og hálfu ári og lýsir því að hún hafi verið komin með alnæmi. Áfallið var stórt en Omel er vön þeim…

Formannsspjall – Ákall til enn frekari aðgerða

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hvernig síðustu tvö ár hafa verið, það er öllum kunnugt. Enginn hefði hinsvegar getað gert sér í hugarlund hve miklar breytingar á samskiptum fólks og öðrum högum fylgdi í kjölfarið en nú virðist vera að birta verulega til. Fólk getur komið saman að nýju og er daglegt…

Alþjóðlegi alnæmisdaginn og Rauði Borðinn

Hugleiðingar framkvæmdastjóra Við höldum loksins alþjóðlega alnæmisdaginn hátíðlegan í ár eftir þriggja ára hlé. Já, tvær veirur, HIV og Covid, hafa truflað líf okkar. Alþjóðlegt slagorð fyrir 1. desember í ár er „Jafnræði“ aðgengi fyrir alla, það er ákall til aðgerða. Þörfin er mikil, 38 milljónir manna eru smitaðir af HIV í heiminum í dag.…