Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV Ísland skrifar:
Við fögnum 30 ára afmæli HIV Ísland þessa dagana. Jafnframt eru 100 ár liðin frá því að spænska veikin náði hámarki hér í Reykjavík með miklu mannfalli og sorg, en þessi hörmungaratburður dró einnig fram það góða í fólki, samhjálp og ást.
Hvernig HIV faraldursins verður minnst eftir 100 ár vitum við ekki. Hugsunin er blendin, við skulum ekki gleyma hvers vegna HIV jákvæðir um veröld alla hafa búið við ótta, mismunun, fordóma og útskúfun í gegnum árin. Gæti það verið vegna þess hve dugleg við vorum og erum að skilgreina og flokka HIV jákvæða í áhættuhópa og eftir áhættuhegðun, hommana, sprautufíklana, innflytjendurna og vændisfólkið. Það er tími til kominn að afglæpavæða HIV sjúkdóminn um víða veröld og skila skömm HIV smitaðra.
Við sem höfum lifað af sjúkdóminn höfum svo margt að þakka fyrir og ekki síst við Íslendingar fyrir að hafa notið heilbrigðisþjónustu af bestu gerð. Hér er hugað að mannréttindum. Þessir þættir hafa líklega átt sinn þátt í því að lífskilyrði HIV jákvæðra er með besta móti hér á landi og eftirsótt að flytja hingað. Áfallasaga, fíknivandi og félagslegir erfiðleikar er miklar hindranir í tilveru margra og styttir líf þeirra.
Störf HIV samtakanna eru sérstök, viðkvæm og frábrugðin öðrum félögum að því leyti að stór hópur félagsmanna vill ekki láta aðra í samfélaginu vita af sér. Þessi hópur kemur ekki fram nema undir algjörum trúnaði og ekki á opinberum viðburðum sem félagið stendur fyrir. Umræðuhópar meðal grasrótarinnar eru starfandi og félagar og almenningur getur gengið að ráðgjöf og upplýsingum um allt það sem málefnið HIV stendur fyrir.
35 einstaklingar hafa greinst með HIV það sem af er ári og eru í þjónustu á göngudeild smitsjúkdóma LSH í Fossvogi. Íslendingar eiga skelfilega háar tölur HIV og annara kynsjúkdóma. Sprenging hefur orðið meðal HIV nýgreindra síðustu þrjú árin. Metið var slegið á síðasta ári með 28 greindra , eins og áður segir eru í ár þegar greindir 35 þegar þessi orð eru skrifuð um miðjan nóvember. Árið 2018, verður því miður lang fjölmennasta ár frá upphafi. Við hjá HIV samtökunum erum mjög slegin yfir þessu. Fjöldi HIV smitaðra á Íslandi frá upphafi eru komnir vel yfir 400. Margir telja að það skekki myndina að þeir sem koma erlendis frá og eru með svo nefnd eldri smit flokkist sem nýgreindir á Íslandi en um helmingur allra í ár erum með „þekkt eldra smit“. Gagnrýnt hefur verið hvernig tölur og greiningar eru birtar almenningi í fjölmiðlum og að það geti alið á fordómum gegn ákveðnum hópum.
Yfirskrift alþjóðlega alnæmisdagsins 1. desember í ár er „Know your status“ sem felur í sér hvatningu til allra að fara í HIV próf. Gott aðgengi að prófum er lykillinn að viðurkenningu á því að sjúkdómarnir eru til staðar og eru jafnframt verkfæri til að stemma stigu við HIV. Það er nauðsynlegt að geta komist í hraðgreiningarpróf á óháðum stað í borginni og megi það verða sem fyrst. Hraðgreiningarprófin gera skimanir auðveldari í öllu samfélaginu, ekki bara meðal lykilhópa. Greiningarstöðvar sem þessar gera fólk ábyrgara og því líður eins og það hafi val. Þessi kostur virkar hvetjandi á fólk til að mæta reglubundið í skoðun og er gríðarlegur sparnaður fyrir heilbrigðiskerfið.
Dásamlegt baráttumál var í höfn í sumar þegar yfirvöld hófu að greiða að fullu fyrir samheitalyf Truvada til að fyrirbyggja ný HIV-smit meðal karla sem stunda kynlíf sín á milli. Um 90 karlar hafa nú á fáum vikum farið í gegnum áhættumat á Landspítala og fengið forvarnarlyf gegn HIV í hendur. Bryndís Sigurðardóttir smitsjúkdómalæknir telur að þeir verði allt að 100 talsins innan skamms og jafnvægi verði náð.
Þrátt fyrir erfiðleika við að ná endum saman í rekstri HIV Ísland, en félagið byggir afkomu sína á styrkjum, hefur öflugt fræðslu- og forvarnarstarf átt sér stað í grunnskólum landsins líkt og fyrri ár. Einnig hjá meðferðarstofnunum, góðgerðarsamtökum, Samtökunum 78, fangelsi og læknadeild svo eitthvað sé nefnt. Dreift er smokkum í miklum mæli til einstaklinga og hópa um allt land sem þess þurfa.
Aðgengi og fræðsla fyrir alla er númer eitt. Við ættum að flokka og skilgreina minna, láta okkur þykja vænt um hvort annað og njóta lífsins. Fræðsla og opinská umræða er afar brýn fyrir alla hópa og okkur ber að stuðla að henni, upplýsa og fræða án umvandana og ótta.
Á 30 ára afmæli HIV Ísland horfum við með bjartsýnisaugum fram á veginn. Við erum þakklát fyrir allan stuðninginn og minnumst fallinna félaga með virðingu. Við gleðjumst yfir því að veruleiki og framtíðarhorfur HIV-jákvæðra eru allt aðrar og betri í dag en fyrir þremur áratugum síðan.
Hugrekki, samastaða og virðing var svo augljós og tímans tákn þegar félagsmenn og stuðningsfólk gengu stolt í litadýrð, gleði og sýnileika á Hinsegin dögum í sumar. Á spjöldum stóð „HIV jákvæðir á lyfjum smita ekki“, „Bless fordómar! Halló gordjöss!“ Það var ekki laust við að framkvæmdastjórinn fengi rykkorn í augað.
Kæru félagsmenn og vinir!
Til hamingju með 30 ára afmælið!
Birtist fyrst í Rauða borðanum 1. des. 2018